Starfsumsóknir

     

    Vinsamlegast athugið að viðhengi sem senda á með umsókn um starf má ekki fara yfir 1,5 mb að stærð.

    Upplýsingar um sumarverkefni fyrir háskólanema

    Svona erum við

    Okkar stefna er að framleiða ál með hámarksarðsemi í samræmi við óskir viðskiptavina og þannig að umhverfis-, öryggis- og heilbrigðismál séu höfð í fyrirrúmi.

    Fyrirtækið einsetur sér að vera í fremstu röð í allri starfsemi sinni, að hafa stöðugar umbætur að leiðarljósi og að starfa ávallt í sátt við umhverfi og samfélag.

    Okkar gildi eru heiðarleiki, ábyrgð, traust og samvinna.

    • Viðskiptavinir
      Við viljum auka ánægju viðskiptavina okkar, þannig að við verðum ávallt þeirra fyrsti valkostur.
    • Starfsfólkið
      Lykillinn að árangri er hæft, áhugasamt og jákvætt starfsfólk sem skapar öruggan og eftirsóknarverðan vinnustað. Við leggjum áherslu á markvisst fræðslustarf, endurgjöf á frammistöðu og gott upplýsingaflæði ásamt tækifærum til starfsþróunar.
    • Rekstur
      Við viljum hámarka rekstrarárangur og arðsemi fyrirtækisins til lengri tíma litið. Við höfum einsett okkur að tryggja skilvirkni allra ferla með stöðugum umbótum og skýrum skilgreindum markmiðum.
    • Umhverfi og samfélag
      Okkur finnst mikilvægt að starfsemin sé í sátt við umhverfi og samfélag í anda sjálfbærrar þróunar. Við fylgjum í einu og öllu þeim lögum og reglum sem gilda.