Fólkið

Starfsmenn hjá Alcan á Íslandi eru um 450 talsins. Sérfræðingar, stjórnendur og millistjórnendur eru hátt í 70 og eru flestir þeirra með háskólamenntun. Flestir hafa menntun á sviði verkfræði og tæknifræði, en einnig eru í okkar sérfræðingahópi viðskiptafræðingar, vörustjórnunarfræðingar og fólk með háskólapróf í jarðefnafræði, eðlisfræði, tölvunarfræði, félagsfræði og sálfræði svo fleiri dæmi séu nefnd. Um 120 iðnaðarmenn starfa hjá Alcan í Straumsvík; bifvélavirkjar, vélvirkjar, rafvirkjar, kokkar, rafeindavirkjar, málarar, múrarar o.fl.  Hátt í 200 starfsmenn hafa lokið námi í Stóriðjuskólanum (stóriðjugreinar) og rúmlega 100 manns eru ófaglærðir.

Hjá fyrirtækinu er lítil sem engin starfsmannavelta, sem ótvírætt bendir til þess að okkar fólki líki við vinnustaðinn. Starfsaldurinn er að meðaltali hár og vel á annað hundrað starfsmenn  hafa náð 30 ára starfsaldri.  Ákveðin kynslóðaskipti hafa þó orðið á undanförnum árum, þar sem margir frumkvöðlanna hafa látið af störfum og yngra fólk tekið við.

Ýmis fríðindi fylgja starfi hjá Alcan í Straumsvík. Auk vel samkeppnisfærra launa má nefna, að starfsmenn eiga kost á fari án endurgjalds með rútum sem aka um allt höfuðborgarsvæðið til og frá Straumsvík, þeim er lagður til vinnufatnaður og starfsmenn fá frítt fæði í vinnutímanum.

Smiðjan

Smiðjan er sérstakur vinnustaður á athafnasvæðinu þar sem starfsmönnum sem komnir eru af léttasta skeiði, og öðrum sem hafa átt við sjúkleika að stríða, er boðið starf við hæfi.  Smelltu á myndina til að skoða viðtal sem birt var í Fréttablaðinu við nokkra starfsmenn í Smiðjunni.

 

           

Starfsfólkið

  • Lykillinn að árangri er hæft, áhugasamt og jákvætt starfsfólk sem skapar öruggan og eftirsóknarverðan vinnustað.
  • Við leggjum áherslu á markvisst fræðslustarf, endurgjöf á frammistöðu og gott upplýsingaflæði ásamt tækifærum til starfsþróunar.