Samfélagið
Starfsemi Alcan á Íslandi hefur mikla þýðingu fyrir samfélagið. Hátt í 500 manns eru í fullu starfi hjá fyrirtækinu og um 150 eru ráðnir til sumarafleysinga á hverju ári. Því til viðbótar lætur nærri, að á hverjum virkum degi séu á athafnasvæðinu í Straumsvík um 100 starfsmenn smærri og stærri verktaka.
Þótt mestur hluti hráefna og tækja sé innfluttur verða um 40% af veltunni eftir á Íslandi; aðallega í formi orkukaupa, skatta, launagreiðslna og fjárfestinga. Fyrirtækið kaupir margvíslega þjónustu og vörur af íslenskum fyrirtækjum og skiptir mörg þeirra verulegu máli. T.d. hefur Alcan í Straumsvík á þessu ári keypt vörur og þjónustu af fyrirtækjum í Hafnarfirði fyrir hátt í tvo milljarða króna.
Samfélagið og við
- Við erum samfélagslega ábyrgt fyrirtæki.
- Við viljum stuðla að félagslegu, efnahagslegu og umhverfislegu sjálfbæri.
- Samfélagssjóður Alcan var stofnaður vorið 2005 og úr honum eru veittir styrkir til ýmissa metnaðarfullra verkefna.
- Við erum hluti af samfélaginu.
- Við viljum vera fyrirmynd annarra.