Framleiðsla

Framleiðsluferill áls - Smelltu á myndina til að stækka hanaFramleiðsla á áli í nútímalegu álveri byggir á háþróaðri tækni, öfugt við það sem margir halda. Allt framleiðsluferlið er tölvustýrt, tækjabúnaður er hátæknilegur og gerir ríkar kröfur til starfsmanna sem fylgjast með ferlinu og grípa inn í þegar þörf krefur.

Í Straumsvík eru framleidd um 500 tonn af áli á dag, eða um 180 þúsund tonn á ári.  Meginhráefnið við framleiðsluna er súrál (Al2O3), hvítt duft sem er efnasamband áls og súrefnis.

Súrálið sem við notum er ýmist unnið í Bandaríkjunum eða Írlandi og flutt sjóleiðis til Íslands. Það er sogað upp úr skipunum og því dælt í súrálsgeymana sem gnæfa yfir athafnasvæðið. Þéttflæðikerfi er svo notað til að flytja súrálið úr hafnargeymunum til kerskálanna en með því er komið í veg fyrir rykmyndun við flutninginn, þar sem kerfið er algjörlega lokað.

Vissir þú að ..

  • Hátæknilegur og flókinn búnaður stýrir öllu framleiðsluferli álversins.
  • Meðallaun starfsmanna eru mun hærri en meðallaun í landinu.
  • Við erum einn stærsti útflytjandi af vörum frá Íslandi.
  • Starfsmenn eru um 450 talsins